Varúð - Hér býr ... Varúlfur

81 „Gangi þér vel,“ hvíslar Marius fyrir aftan mig. Mig langar ekkert að sjá hvernig mamma er orðin. En ég verð. Verð að ná henni inn áður en hún hleypur af stað, út í nóttina, í leit að æti. Hver veit hvað hún gæti veitt. Eða hvern! Fullt tunglið baðar garðinn hvítri birtu. Á miðju grasinu stendur hún, loðin og risavaxin. Varúlfurinn teygir sig til tunglsins með opna lófa og spangólar hátt. Ég held dósinni að henni og færi mig nær. Ú A A A A A Ú Ú Ú Ú!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=