Varúð - Hér býr ... Varúlfur

77 „Kannski … kannski ekki,“ svara ég hvöss. „Ég hef fulla trú á því. Sjáðu Marta,“ segir Marius og bendir út um gluggann. Himinninn er kolsvartur. Örfá ský eru á himni og við heyrum hvernig vindurinn lemur trén. Bráðum feykir hann skýjunum frá tunglinu og þá kemur í ljós hvort mamma er hólpin. Hvort hún er aftur ósköp venjuleg kona með rautt og úfið hár, eða hvort ég þarf að læsa hana í búri á nóttunni og fylla skúffurnar af kattamat. „Nennirðu að gista aftur?“ „Það er skóli á morgun … “ svarar Marius og hnyklar brýnnar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=