Varúð - Hér býr ... Varúlfur

76 VONANDI BÍTUR HÚN ENGAN Mamma röltir um íbúðina í leit að Úlfhildi en finnur hana hvergi. „Æ, Marta. Þetta var fyrsta notalega kvöldið sem ég á í langan tíma, en þér tókst að fæla Úlfhildi í burtu!“ „Fyrirgefðu, en ég vil bara ekki VARÚLF sem stjúpmömmu!“ hrópa ég önug. „Nú hættirðu þessu tali um varúlfa!“ segir mamma hvöss. „Inn í herbergi með ykkur krakkar. Ég þarf að skúra stofuna.“ Við Marius tökum saman spilin og förum inn í herbergi. Þegar ég loka hurðinni langar mig mest að hágrenja en ég er of reið. Reið út í Úlfhildi að hafa ekki bara drukkið úr bollanum sínum. Reið út í sjálfa mig að eyðileggja alltaf allt. „Við björguðum allavega mömmu þinni,“ segir Marius og leggur aðra höndina á bakið á mér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=