Varúð - Hér býr ... Varúlfur

75 „Reyndar ekki alveg eins, það eru sko mismunandi tegundir,“ byrjar Marius en ég stoppa hann. „Við sóttum seyði til nornarinnar til að láta ykkur batna.“ „Marta mín,“ segir mamma og hlær enn hærra. „Ertu að brugga galdraseyði og plata ofan í okkur Úlfhildi?“ „Til að bjarga ykkur!“ ítreka ég en tek þá eftir því að enginn hlær með mömmu. „Hvar er Úlfhildur?“ spyr Marius. Við lítum skelkuð í kringum okkur. Úlfhildur er horfin.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=