Handbók í textíl - viðbótarverkefni og námsmat

HANDBÓK Í TEXTÍLMENNT | KENNSLULEIÐBEININGAR | © MENNTAMÁLASTOFNUN 2023 | 40314 123 TEXTÍLAÐFERÐIR: BÚTASAUMUR Bútasaumur flýtiaðferð SKORNIR FERNINGAR/STJARNA Aðferð: 1. Skerðu ferninga (20 cm x 20 cm) úr einlitu og munstruðu efni. 4 stk. 4 stk. 8 stk. 2. Leggðu bútana saman, réttu á móti réttu og saumaðu eins og fyrirmælin segja í Handbók í textíl bls. 80–81. 3. Skerðu fjóra búta úr munstruðu efni og úr einlitu efni sem eru jafnstórir tvílitu bútunum eftir að þeir hafa verið saumaðir saman og straujaðir. 4. Raðaðu öllum 16 ferningum í stjörnu á vinnuborðið eftir myndinni. Það verða tveir bútar afgangs! 5. Saumaðu ferningana saman í renninga. Straujaðu saumförin saman til hliðar. Saumaðu renningana saman í stærri ferning. Straujaðu. 6. Ef þú raðar bútunum á annan hátt myndast öðruvísi stjörnur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=