Halló heimur 4 - verkefnabók

12 ÁSKORUN: Teiknaðu mynd af heimi þar sem bara græn orka er notuð. 26 27 Græn orka Ég er að spá í hvað gerir orku græna. Er það orka sem er góð fyrir Jörðina okkar og hefur lítil umhverfisáhrif? Æ, viltu kannski hjálpa mér að svara þessum spurningum? 1. Hvað einkennir græna orku? Kemur bara frá rafmagni Náttúruauðlind sem mengar lítið Kemur úr grænum rafhlöðum Bara notuð á sumrin 2. Hvað af þessu telst græn orka? Vindorka Kol Sólarorka Vatnsorka 3. Af hverju er vindur betri en olía? Honum fylgir minni vindgangur Olía finnst bara á sumrin Vindur endurnýjast og mengar ekki Vindmyllur framleiða olíu 4. Hvað gerir sólarorka? Gerir fólk myrkfælið Styttir vetrarmánuðina Breytir nótt í dag Gefur rafmagn án mikillar mengunar 5. Hvað gerist við mikla olíu- og gasnotkun? Það verður gasskortur í landinu Loftið mengast og Jörðin hitnar Andrúmsloftið verður tærara Þrumum og eldingum fjölgar 6. Hver er kostur vatnsaflsvirkjunar? Hækkar yfirborð úthafa Fjölgar búsvæðum sjávardýra Framleiðir rafmagn án mikillar mengunar Hvetur fólk til vatnsdrykkju 7. Hvaða ókostir fylgja vindmyllum? Spaðarnir eru einnota Skrúfurnar trufla útvarpsbylgjur Stöðvarnar eru dýrar í uppsetningu Skógar vaxa illa í nágrenni þeirra 8. Hvers vegna er græn orka mikilvæg? Hún gefur gróðrinum græna litinn Henni fylgir mesta mengunin Án hennar þrifist ekkert líf á Jörðu Úr henni er framleitt grænt te 9. Hvernig má spara orkuna? Slökkva ljósin Hafa ísskápinn lokaðan Nota minna af heitu vatni Allt ofangreint 10. Hvað telst ekki grænn orkugjafi? Sólarorka Vindorka Kjarnorka Vatnsorka x

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=