Halló heimur 4 - verkefnabók

11 ÁSKORUN: Hannaðu virkjun sem nýtir leiktæki skólalóðarinnar til raforkuframleiðslu. 26 27 Alls konar orkugjafar Það er stutt síðan rafmagnið var fundið upp og í dag getum við ekki verið án þess. Við nýtum líka margar ólíkar leiðir við að framleiða raforku. Settu rétta tölustafi við textana. Kjarnorkuver 1 Krafti öldugangs úti á hafi og við strendur er breytt í raforku. Orkan er framleidd með því að kljúfa frumeindir í kjarnaofnum. Úrgangurinn er geislavirkur. Þrýstingur frá heitri jarðgufu snýr hverfli og framleiðir þannig raforku. Fallþungi vatns, eins og í fossum, er notaður til að búa til orku. Vindurinn snýr spöðum á vindmyllu og við það verður til orka. Geislar sólarinnar eru fangaðir og umbreytt í raforku. Þegar kol, olía og jarðgas er brennt verður til raforka. Þessu fylgir mengun og gróðurhúsalofttegundir. Virkjunin nýtir hafstrauma til að snúa spöðum. Við það verður til orka. 5 Ölduvirkjun Vatnsaflsvirkjun 2 6 Sólarorkuver Vindorkugarður 3 7 Jarðvarmavirkjun Sjávarfallavirkjun 4 8 Vinnsla jarðefnaeldsneytis

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=