Samvinna um læsi - Tillaga að foreldrafræðslu um lestur og lestrarnám barna í 1. bekk

18 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Mat á lestri Lestur er metinn til að kanna stöðu hvers nemanda og bregðast við niðurstöðum þegar þær liggja fyrir. Á heimasíðu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu má nálgast upplýsingar um Matsferil en hann er safn matstækja sem kennarar geta notað til að kanna stöðu- og framvindu nemenda, meðal annars í lestri. Mikilvægast fyrir foreldra er að fá upplýsingar um: • Hver tilgangur matsins er. • Hvað telst æskilegur árangur. • Hvernig upplýsingar munu birtast foreldrum. Einnig er hægt að nefna stuttlega hvort aðstoð og leiðbeiningar til foreldra um breyttar áherslur í heimalestrinum muni fylgja þegar þess gerist þörf. Mat á lestri í 1. bekk • Hvaða mælitæki eru notuð og hvenær? • Hvernig eru niðurstöðurnar notaðar til kennslu? • Hvernig og hvenær fá foreldrarnir niðurstöðurnar? • Gögn frá leikskólum sem hafa áhrif á framgang barns í grunnskóla skulu berast á milli stofnana samkvæmt 6. gr. laga um miðlun upplýsinga. Glæra 11

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=