19 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Viðmið um árangur Það er mikilvægt að kynna fyrir foreldrum viðmið um árangur strax í upphafi lestrarnáms barna þeirra. Ein leið er að sýna dæmi um það hverning niðurstöður eru settar fram og þeim skilað til foreldra í kjölfar próffyrirlagnar. Þessi leið hefur þann kost að þá gefst færi á að útskýra atriði í skýrslunni sem gætu vafist fyrir foreldrum. Gott getur verið að beina sjónum t.d. að: • Mælitölu • Landsmeðaltali • Lýsingu á stöðu (neðstu mörk kvarða, undir meðaltali, við meðaltal, yfir meðaltali) • Lýsingu á stöðu nemenda í texta og næstu skref í kennslu • Almennri lýsingu á stöðu nemenda á hverju mælitölubili Þetta krefst þess að kennarar séu vel að sér í því hvernig niðurstöður eru settar fram og hvað þær þýða. Viðmið um árangur Gerið grein fyrir því hvernig niðurstöður lesfimi- og stuðningprófa eru settar fram. Glæra 12
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=