17 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Á glærunni er stutt dæmi um hvernig ályktunarhæfni er notuð til að átta sig á fleiru en kemur beint fram í textanum. Barnfóstran las draugasögu fyrir svefninn og systkinin vildu hafa ljósið kveikt um nóttina. • Barnfóstra les kvöldsögu, sú ályktun dregin að foreldrarnir séu ekki heima. Barnfóstrur passa börn, orðaforði og bakgrunnsþekking skýrir það. • Draugar eru hræðilegir og draugasögur geta verið það líka, bakgrunnsþekking á slíkum sögum er virkjuð til að skilja það. • Systkinin hafa ljósið kveikt um nóttina, það má draga þá ályktun að þau hafi orðið hrædd vegna draugasögunnar og vilji ekki hafa myrkur.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=