Samvinna um læsi - Tillaga að foreldrafræðslu um gagnvirkan lestur og umræður

18 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Stýrifærni Stýrifærni er sú hæfni sem við notum til að stjórna hugsunum okkar, tilfinningum og atferli þannig að við náum að gera það sem við ætlum okkur, hvort sem það er að púsla, fara á milli staða eða lesa texta okkur til skilnings. Lesskilningur er afar flókið ferli og háður mörgum þáttum eins og reynt er að útskýra fyrir foreldrum í þessari fræðslu. Að hafa stjórn á sjálfum sér og ná að einbeita sér er afar mikilvægt til að lesturinn verði árangursríkur. Eftir því sem textar þyngjast verður þrautseigja æ mikilvægari, að barn haldi út að einbeita sér og ígrunda lengri og þyngri texta. Hér er dæmi um tvo texta þar sem hægt er að sýna foreldrum muninn á texta fyrir byrjendur þar sem áherslan er á að kenna umskráningu og svo texta fyrir miðstig sem er mun flóknari, inniheldur lengri orð, setningar og málsgreinar, fleiri greinarmerki, beina ræðu og óbeina í sama texta og ýmsar tilvísanir og tengingar. Stýrifærni Lestur er flókin athöfn sem krefst fleira en bara þess að geta umskráð einstök orð og málsgreinar. Það þarf t.d. að ... • lesa orðin og skilja, • átta sig á merkingu heildarinnar sem er lesin og tengja við aðra þekkingu, • beita útsjónarsemi og leita leiða þegar skilning skortir, • og halda einbeitingu og þrautseigju jafnvel þó textinn sé þungur og truflun sé í umhverfinu. Glæra 10

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=