62 Tilfinningakrukkan Markmið: Tjá tilfinningar á einlægan hátt. Áhöld: Miðar, litir. Leiðbeiningar: 1. Börnin skrifa tilfinningar sem þau eiga erfitt að tala um á miða og setja í krukku. 2. Leiðbeinandi les upp einn miða í einu og ræðir tilfinningarnar sem hópurinn á erfitt með að ræða. 3. Önnur útfærsla: leiðbeinandi les upp fyrir fram ákveðnar aðstæður (sjá lista hér að neðan) og spyr börnin hvernig þau myndu bregðast við. Aðstæður: · Mamma eða pabbi verða reið við þig af því að þú vaskaðir ekki upp. · Þér gengur mjög vel í verkefni í skólanum og kennarinn þinn hrósar þér. · Þú ert í íþróttum og einhver hleypur óvart á þig. · Einhver er að stríða þér. · Þú hjálpar vini þínum og hann þakkar þér fyrir það. · Þú tapar í spili. · Þú nærð ekki að vera fyrst/ur í röðinni í skólanum. Umræðupunktar: · Af hverju líður þér svona? · Hvers vegna? · Hvað getur þú gert til að líða betur?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=