61 Líkamspartafimi Markmið: Að þjálfa sjálfsstjórn og einbeitingu. Áhöld: Plastglös. Leiðbeiningar: 1. Börnin standa í tveimur röðum. Raðirnar vísa hvor á móti annarri. Plastglas er á gólfinu á milli þeirra. 2. Leiðbeinandi nefnir líkamshluta, t.d. höfuð og þá koma börnin við höfuðið á sér. 3. Þegar leiðbeinandi kallar: „glas“ keppast börnin sem eru fremst í röðinni hverju sinni við að ná því. 4. Sá sem vinnur fer til hægri, sá sem tapar fer til vinstri og bíður þar til leiknum lýkur. Umræðupunktar: · Var einhver sem greip í glas áður en orðið: „glas“ var kallað upp? Af hverju? · Hvernig hugsuðu þau sem aldrei náðu glasinu?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=