Eitt líf - Kennsluleiðbeiningar

mms.is 33 AÐALNÁMSKRÁ GRUNNSKÓLA Efnið Eitt líf fellur vel að hæfniviðmiðum náttúrugreina, samfélagsgreina og skólaíþrótta, sjá dæmi um hæfniviðmið sem eiga við þennan kafla í inngangskafla, bls. 5. UNDIRBÚNINGUR FYRIR KENNSLU: • Lesa kennsluleiðbeiningar og viðeigandi blaðsíður í dagbókinni áður en kennsla hefst. • Lesa yfir lista um hvert börn og ungmenni geta leitað ef vandasöm mál bera að garði, fara svo yfir listann með nemendum áður en kennsla hefst. LAGT ER TIL AÐ KENNA 3. KAFLA MEÐ EFTIRFARANDI HÆTTI: • Heildartími: 2 kennslustundir (40 mín hver kennslustund), 80 mín. ˚ Kennslustund 1 ▪ Gagnrýnin hugsun ˚ Kennslustund 2 ▪ Ákvarðanataka ▪ Besta ákvörðun ▪ Venjur KENNSLUSTUND 1 GAGNRÝNIN HUGSUN - AUGLÝSINGAR KVEIKJA AÐ EFNINU Hlustið á hlaðvarpsþátt 3 saman og látið nemendur vita að þau geti notað dagbókina til að krota í eða skrifa niður punkta sem þeim dettur í hug þegar verið er að hlusta á hlaðvarpið. Það geta verið spurningar, hugleiðingar eða annað. Einnig eru þrjár spurningar í dagbókinni sem nemendur geta verið búin að velta fyrir sér áður en þau hlusta. UMRÆÐUPUNKTAR Eftir að hafa hlustað á hlaðvarpið er tilvalið að spyrja nemendur eftirfarandi spurninga og fáðu þau til að finna svörin í sameiningu. Að finna réttu svörin krefst virkrar hlustunar og gagnrýnnar hugsunar. 3.1 Dagbók bls. 28 - Í DAGLEGU LÍFI

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=