Gegnum holt og hæðir - rafbók

61 17. Syndapokarnir Sögugluggi Einu sinni var prestur mjög vandlætingasamur Hann kenndi mönnum hart og sagði tilheyrendum sínum hræsnislaust til syndanna Í sókninni bjó kona ein gömul Hún kom sjaldan sem aldrei til kirkju og átaldi prestur hana oft fyrir það og kvað hún mundi naumast fá inngöngu í himnaríki ef hún vanrækti svo mjög kirkjuna Kerling hirti ei um það Leið svo nokkur tími Einu sinni sýktist kerling Lætur hún þá sækja prest og biður hann að þjónusta sig því hún segist vera mjög angruð orðin af illgjörðum mannanna Prestur bregður við skjótt og finnur sjúklinginn Ætlar hann nú að fara að telja um fyrir kerlingu því hann sá að hún var mjög angruð Kerling segir að hann skuli fyrst heyra hvað sig angri mest Prestur játti því og hlustar nú vandlega á sögu syndarans Kerling segir þá: – Mig dreymdi fyrir skömmu að ég þóttist koma til himnaríkis Þar barði ég að dyrum því mér var kalt og vildi ég komast í húsaskjólið Þar kom maður til dyra og hafði stóra lyklakippu í hendinni Ég spurði hann að heiti Hann sagðist heita Pétur Kannaðist ég þá við manninn og bað hann að lofa mér inn – Nei, hér áttu ekki að vera, segir Pétur – Æ, lof mér inn, sagði ég, mér er svo ógnarlega kalt; lof mér rétt inn fyrir hurðina – Nei, það er af og frá, segir Pétur – Ég sá að þar var ógnarstór skemma á hlaðinu og bað ég þá Pétur að lofa mér þar inn Það sagði hann ég skyldi fá og lauk nú upp skemmunni Þá varð ég fegin og hljóp inn en Pétur stóð í dyrunum En þegar ég kom inn sá ég þar ógnarlega stóra hlaða af pokum, stórum og smáum Þeir voru allir fullir af einhverju og bundið fyrir opin Þar voru líka sjóvettlingar og þeir voru líka fullir sumir en ekki nema í þumlunum á sumum Ég spurði Pétur hvað í þessum pokum væri Hann segir það sé syndir mannanna Má ég ekki fá að sjá pokann prestsins míns, segi ég, hann er víst ekki stór vandlætingasamur: aðfinnslusamur, umvöndunarsamur átaldi: setti ofan í við, skammaði angruð: hrygg

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=