Gegnum holt og hæðir - rafbók

58 Helgisögur 16. Seint fyllist sálin prestanna Sögugluggi Einu sinni var ungur maður og efnilegur Hann lagði ástarhug á stúlku eina og bað hennar en hún aftók um ráðahag við hann Af því varð maðurinn mjög angraður og fór oft einförum Einu sinni var hann einn úti á víðavangi að rölta eitthvað Veit hann þá ekki af því fyrr en maður kemur til hans og heilsar honum Biðillinn tekur kveðju hans dauflega enda þykist hann ekki þekkja manninn Komumaðurinn er altillegur við hann og segist vita að það liggi illa á honum og út af hverju það sé Segist hann skuli sjá svo um að stúlkan sem ekki hafi viljað taka honum sæki ekki minna eftir honum en hann eftir henni, ef hann vilji heita sér því að verða vinnumaður sinn að ári liðnu Maðurinn tekur þessu boði þakksamlega og ráða þeir nú þetta með sér Eftir það skilja þeir og fer biðillinn heim Litlu seinna finnur hann stúlkuna við kirkju og er hún þá orðin öll önnur við hann en áður og sækir mjög eftir honum Maðurinn fer þá heldur undan og hugsar að þetta sé hrekkur af henni En bráðum kemst hann að því að henni er full alvara Verður það nú úr að hann fær stúlkunnar og á hana og voru samfarir þeirra góðar Nú fer að líða á árið frá því hann hitti þann sem hafði stutt hann til konumálanna og fer nú bóndi að fá hugsýki af því hver þetta hafi verið Þegar mánuður var eftir til krossmessu fer hann á fund prestsins síns og segir honum upp alla sögu og biður hann ráða Prestur segir að hann hafi of seint sagt sér þetta, því þar hafi hann átt kaup við kölska sjálfan, er hann átti við þenna ókunnuga mann Fer þá algjörlega að fara um bónda og biður prest því ákafar ásjár Prestur varð vel við því og safnar þegar að sér múg og margmenni, lætur þá alla taka til starfa og grafa innan stóran hól og bera alla moldina burtu Síðast lætur hann gera kringlótt gat lítið upp úr altillegur: alúðlegur, blátt áfram krossmessa: (á vori) 3. maí; (á hausti) 14. september, hér er átt við haust biður prest ásjár: biður um hjálp, liðveislu

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=