[Kynning] Nú eigið þið
að fást við vandamál vegna fólksfjölgunar í heiminum – einkum á
Indlandi. Í þessum kafla er fjallað um fæðuöflun. Skrifið niðurstöður
ykkar t.d. inn í ritvinnslu. Þið getið líka búið til línurit og myndrit
á pappír eða í tölvunni.
1. Dettur ykkur góð fyrirsögn í hug? Hvernig ætlið þið að taka á
verkefninu?
2. Vakna hjá ykkur einhverjar spurningar sem þið viljið gjarna fá svör við?
[Heimildir]
1. Skráið hjá ykkur hvar þið ætlið að leita upplýsinga um efnið.
2. Þið skuluð venja ykkur á að skrá bókarheiti, nöfn á kvikmyndum,
vefslóðir eða annað sem þið ætlið að nota við heimildaöflun
– líka úr námsefninu „Umhverfis jörðina“.
[Úrvinnsla og kynning]
Það getur verið ágætt að hugleiða strax í upphafi hvernig þið
ætlið að kynna verkefnið. Vel getur verið að þið skiptið um skoðun
þegar verkefnið er lengra á veg komið.
1. Skráið hvað þið ætlið að gera.
2. Skráið hugmyndir um hvernig þið ætlið að kynna verkefnið fyrir öðrum.
[Aðferð] 1. Hvernig er hægt að
brauðfæða sífellt fleira fólk á Indlandi?
a) Athugið þróunina í landbúnaði á Indlandi.
b) Þið getið borið saman t.d. við Ísland og hugleitt hvaða breytingar gera þarf
í landbúnaði á Indlandi ef auka á framleiðsluna frekar.
2. Gerið grein fyrir því hvað þarf að breytast á Indlandi ef fólkið
sem ekki á landskika á að hafa efni á því að kaupa bæði mat
og aðrar neysluvörur.
[Mat] 1. Hvað hafið þið
lært?
2. Hvaða þáttur verkefnisins fannst ykkur skemmtilegastur?
3. Hvernig metið þið sjálf framlag ykkar?
4. Hvernig metið þið verkefnið og skil ykkar á því?