Fólksfjölgunin: Aukin fólksfjölgun

Verkefni - leiðbeiningar


[Kynning]
Nú eigið þið að fást við vandamál vegna fólksfjölgunar í heiminum – einkum á Indlandi. Í þessum kafla er sjónum beint að aukinni fólksfjölgun. Skrifið niðurstöður ykkar t.d. inn í ritvinnslu. Þið getið líka búið til línurit og myndrit á pappír eða í tölvunni.
1. Dettur ykkur góð fyrirsögn í hug? Hvernig ætlið þið að taka á verkefninu?
2. Vakna hjá ykkur einhverjar spurningar sem þið viljið gjarna fá svör við?

[Heimildir]
1. Skráið hjá ykkur hvar þið ætlið að leita upplýsinga um efnið.
2. Þið skuluð venja ykkur á að skrá bókarheiti, nöfn á kvikmyndum, vefslóðir eða annað sem þið ætlið að nota við heimildaöflun – líka úr námsefninu „Umhverfis jörðina“.

[Úrvinnsla og kynning]
Það getur verið ágætt að hugleiða strax í upphafi hvernig þið ætlið að kynna verkefnið. Vel getur verið að þið skiptið um skoðun þegar verkefnið er lengra á veg komið.
1. Skráið hvað þið ætlið að gera.
2. Skráið hugmyndir um hvernig þið ætlið að kynna verkefnið fyrir öðrum.


[Aðferð]
1. Notið
„tímalíkan mannfjöldaþróunar“ og útskýrið hvernig fólksfjölgunin hefur þróast.
2. Útskýrið hvað getur gert það að verkum að fólki fækkar í einhverju landi á ákveðnu tímabili.
3. Hugleiðið kosti og galla mikillar fólksfjölgunar – og fólksfækkunar – og lýsið þeim.
4. Lesið um ástæður þess að fólk vill eignast mörg börn. Gerið síðan grein fyrir nokkrum leiðum til þess að draga úr fæðingartíðni á Indlandi og í öðrum löndum.
5. Búið til kynningarefni (t.d. bækling, veggspjald eða lítið leikrit) sem á að hafa það markmið að sýna ólæsu fólki fram á að það getur verið því til hagsbóta að eignast færri börn.

[Mat]
1. Hvað hafið þið lært?
2. Hvaða þáttur verkefnisins fannst ykkur skemmtilegastur?
3. Hvernig metið þið sjálf framlag ykkar?
4. Hvernig metið þið verkefnið og skil ykkar á því?
Tilbaka á upphafssíðu