Verkefni
– leiðbeiningar
[Kynning]
Nú eigið þið
að fást við vandamál vegna fólksfjölgunar í heiminum – einkum á
Indlandi. Þið eigið að afla ykkur upplýsinga um fólksfjölgun, orsakir hennar
og afleiðingar. Skrifið niðurstöður ykkar t.d. inn í ritvinnslu. Þið getið
líka búið til línurit og myndrit á pappír eða í tölvunni.
1. Dettur ykkur góð fyrirsögn í hug? Hvernig ætlið þið að taka á
verkefninu?
2. Vakna hjá ykkur einhverjar spurningar sem þið viljið gjarna fá svör við?
[Heimildir]
1. Skráið hjá ykkur hvar þið ætlið að leita upplýsinga um efnið.
2. Þið skuluð venja ykkur á að skrá bókarheiti, nöfn á kvikmyndum,
vefslóðir eða annað sem þið ætlið að nota við heimildaöflun
- líka úr námsefninu „Umhverfis jörðina“.
[Úrvinnsla og kynning]
Það getur verið ágætt að hugleiða strax í upphafi hvernig þið
ætlið að kynna verkefnið. Vel getur verið að þið skiptið um skoðun
þegar verkefnið er lengra á veg komið.
1. Skráið hvað þið ætlið að gera.
2. Skráið hugmyndir um hvernig þið ætlið að kynna verkefnið fyrir öðrum.
[Aukaverkefni?]
Búið til áætlun um vinnuferlið.
Hvaða gögn og upplýsingar ætlið þið að nota?
Hvað ætlið þið að lesa?
Hvernig ætlið þið að lýsa niðurstöðum ykkar og skýra þær?
[Mat]
1. Hvað hafið þið
lært?
2. Hvaða þáttur verkefnisins fannst ykkur skemmtilegastur?
3. Hvernig metið þið sjálf framlag ykkar?
4. Hvernig metið þið verkefnið og skil ykkar á því? |