Tilbage til KINA-forsiden ...

Getraun
Vefgetraun um Kína
10 spurningar og einni betur fyrir þann sem veit allt um Kína!

Það er hægt að komast fremur ódýrt til Kína með hópferðum ferðaskrifstofanna. Þegar bæklingar þeirra eru skoðaðir kemur í ljós að sömu staðirnir eru sýndir aftur og aftur og eiga að draga að sér ferðamennina. Þetta eru Kínamúrinn, Borgin leyndardómsfulla, Beijing að næturlagi o.s.frv. Það er sem sagt mjög jákvæð mynd sem upp er dregin af Kínaveldi.

En það er ekki vandi að finna heimasíður á netinu þar sem mælt er með því að hætta öllum viðskiptum við Kína og þar er myndin heldur neikvæð.

Það má með öðrum orðum líta á Kína frá mismunandi sjónarhornum. Þegar einhverju er haldið fram um Kína kallar það oft líka á andstæðu sína.

Í getrauninni, sem hér fer á eftir, er tekið tillit til þessa. Reynt er að kalla fram svolítið nákvæmari mynd af Kína. Þegar þú hefur svarað spurningunum tíu ættir þú að hafa sæmilega skýra mynd af aðstæðum í Kína. Krækjurnar ellefu eiga að hjálpa þér að svara.

Og að lokum skaltu að reyna að svara þessari umfangsmiklu og erfiðu spurningu:
Hver er sannleikurinn um Kína? (Skoðaðu kaflann neðst á síðunni).
Spurningarnar tíu:

1. Hvaða merkingu hefur drekinn í kínverskri menningu?

2. Hvers vegna finnst sumum að það eigi ekki að kaupa kínverskar vörur?

3. Hafa Kínverjar einhverja raunverulega ástæðu til að óttist granna sína ef litið er til sögunnar frá 1930 til nútímans?

4. Af hverju er samband Taívan og Kína svo viðkvæmt sem raun ber vitni?

5. Hvað er Tang-tímabilið?

6. Hver var Deng Xiaoping og hvaða áhrif hafði hann á þróun Kína?

7. Hvað er wing tsun?

8. Hver er afstaða vestrænna og kínverskra kaupsýslumanna hvorra til annarra?

9. Hvernig lýsir þú einkennum kínverskra ævintýra?

10. Hvað var silkivegurinn?
Krækjurnar 11:

ATH: Þessar krækjur opna allar nýja glugga!

gopher://hoshi.cic.sfu.ca/00/dlam/business/forum/china/rittenbe

http://www.cnn.com/WORLD/asiapcf/9906/02/tiananmen/deng.profile/index.html

http://www.chinavista.com/experience/fable/fable.html

http://www.princeton.edu/~nanking/html/history_of_the_nanking_massacre.html

http://www.taiwanese.com/protest/

http://www.odci.gov/cia/publications/factbook/index.html

http://www.marythunder.com/People/DalaiLama/DalaiLamaStatement1999.htm

http://www3.sympatico.ca/bw.mcgee/

http://depts.washington.edu/reecas/

http://www.cocc.edu/cagatucci/classes/hum210/tml/ChinaTML/chinatml3.htm
Stóra spurningin: Hver er sannleikurinn um Kína?

Þessari spurningu er ekki auðsvarað - en það má þó reyna að svara henni. Líttu á það sem ögrandi verkefni og skrifaðu eina A4 síðu þar sem þú tekur mið af því sem kemur fram í spurningunum tíu. Fjallaðu m.a. um samskipti Kína við nágrannalöndin, sögu Kína, lífskjör Kínverja, fjárhag ríkisins o.s.frv.

Góða skemmtun!
     
Þú getur líka notað: Krækjur um Kína og Almennar upplýsingar um Kína      
Tilbage til KINA-forsiden ...