Tilbage til KINA-forsiden ... Almennar upplýsingar um Kína
Alþýðulýðveldið Kína
Kina's flag
Á kínversku: Zhonghua Renmin Gongheguo
Flatarmál: 9.596.960 km2
Landamæri: 22.143 km
Strandlengja: 14.500 km
Á þessari síðu:

Flatarmál

Íbúar
Ungbarnadauði
Lífslíkur
Fæðingartíðni
Lestur
Vinnuafl
Tíbet
Þjóðerni
Stíflan við Gljúfrin þrjú
Umhverfi
Margir munnar að metta
Takmarkanir vegna fólksfjölgunar

- skoðið líka kaflana: Krækjur um Kína og Link til JyllandsPosten - JP-Explorer ...
Flatarmál (Tölur námundaðar)

Flatarmál í heild

9.600.000 km2

100,0 %

Vatn

270.000 km2

2,8 %

Skógur

1.340.000 km2

14,0 %

Land til ræktunar *)

960.000 km2

10,0 %

Áveitusvæði

49.000 km2

0,5 %

*) tæplega helmingur er graslendi

Tilbage til toppen af siden ...
Íbúar
1.236.914.658 (áætlun í júlí 1998)

Aldursdreifing:
0-14 ára: 26%
15-64 ára: 68%
65+: 6%

Íbúafjölgun: 0,83%
Fæðingar: 16 á hverja 1.000 íbúa
Dauðsföll: 7 á hverja 1.000 íbúa

Tilbage til toppen af siden ...
Ungbarnadauði

45 á hver 1.000 börn fædd lifandi

Tilbage til toppen af siden ...
Lífslíkur

- Meðaltal: 69.6 ár
- Karlar: 68,3
- Konur: 71.0

Tilbage til toppen af siden ...
Fæðingartíðni

1,8 fæðing á hverja konu.

Tilbage til toppen af siden ...
Lestur

82% þeirra sem náð hafa 15 ára aldri eru læsir.

Tilbage til toppen af siden ...
Vinnuafl

- Landbúnaður 53 %
- Námugröftur 7 %
- Iðnaður 26 %
- Þjónusta 14 %

Tilbage til toppen af siden ...
Tíbet

Þróunaraðstoð Kínverja við Tíbet árið1998: 45,0 milljarðar króna.
Kína notar timbur og steinefni frá Tíbet að virði u.þ.b. 45 milljarða ísl. króna árlega.
Hagvöxtur í Tíbet 1990-94: 10%
Fjöldi skóla í Tíbet
1950: 0
1998: 4.000 + 3 háskólar
Íbúafjöldi: 2,0 milljónir Tíbeta. 0.4 milljónir Kínverja.

Tilbage til toppen af siden ...
Stærstu þjóðarbrot í Kína


Íbúar Kína. Tölurnar segja til um íbúafjölda í milljónum.
Úr „Geografi - fag og undervisning“. Geografforlaget 1999

94% af íbúum Kína búa í austurhluta landsins. Aðeins 6% búa í Vestur-Kína en þar er hins vegar að finna helstu náttúruauðæfin.

Han-kínverjar: 93%
Ættbálkar: 2%
Tyrknesk þjóðarbrot (Uighur): 1%
Mongólar: 1%
Tíbetar: 1%
Aðrir ( u.þ.b. 51 þjóðarbrot) : 2%

Tilbage til toppen af siden ...

Stíflan við Gljúfrin þrjú


Áætlað uppistöðulón eftir að stíflan hefur verið byggð.
Úr„Geografi - fag og undervisning“. Geografforlaget 1999.

  • Áætlaður byggingartími 1994 - 2009
  • Chang Jiang (áður Yangtze Kiang) þýðir „Fljótið langa“. 5.900 km.
  • 80% af vöruflutningum á ám og vötnum í Kína eru á fljótinu, skurðum tengdum því og ám sem renna í það.
  • 40% af landbúnaðar- og iðnaðarframleiðslu fer fram á vatnasvæði fljótsins. Þar búa 350 milljónir manna.
  • Við mynni fljótsins er vatnsmagnið að meðaltali 35.000 m3 á sekúndu.
  • Á tímabilinu júní - október (sumarmonsún) er vatnsmagnið um 90.000 m3 á sekúndu
  • Gljúfrin þrjú eru samtals 200 km löng.
  • Fallhæðin er 120 metrar.
  • Breidd stíflunnar er 924 metrar.
  • Túrbínurnar 26 eiga að framleiða 13.000 MW (stærsta virkjun í heimi) . Stærsta vatnsaflsvirkjun í Svíþjóð (Harsprånget) framleiðir 940 MW.
  • Aflframleiðsla mun árlega svara til þess að brennd séu 45 milljónir tonna af kolum. Stærsta kjarnorkuver Svíþjóðar framleiðir sem nemur 3.500 MW.
  • Kostir stíflunnar: Vatnsorkan framleiðir rafmagn til iðnaðar. Skapar atvinnu. Dregur úr koltvísýringsmengun. Dregur úr flóðahættu. (Árið 1994 létust 30.000 manns þegar áin Chang Jiang flæddi yfir bakka sína).
  • Ókostir við stífluna: 1,3 milljónir manna þurfa að flytja (nauðugir) frá svæðinu þar sem uppistöðulónið verður. Botnfall mun nema um 600 milljónum tonna á ári. Við það mun vatnsyfirborðið hækka og hugsanlega truflast orkuframleiðslan. Botnfallið var áður mikilvægur áburður á akrana meðfram fljótsbökkunum.

Tilbage til toppen af siden ...

Umhverfi

  • Gífurleg mengun á sér stað vegna þess hve miklu er brennt af steinkolum, einnig í ofnum og eldavélum á heimilunum. Brennisteinsdíoxíð og kolaryk í loftinu eykur hættu á súru regni sem m.a. eyðileggur skóga og vötn.
  • Mikill fjöldi íbúanna hefur ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni, m.a. vegna þess að vatnsnotkun í iðnaði eykst og iðnaðurinn mengar uppistöðulónin.
  • Bílaeign eykst um 20% á ári.
  • Minna en 10% af klóakvatni er hreinsað.
  • Skóglendi minnkar vegna súra regnsins.
  • 1/5 hluti ræktanlegs lands hefur horfið vegna uppblásturs og uppbyggingar borgarsvæða síðan 1949.
  • Eyðimörkin í norðri færist suður á bóginn.

Tilbage til toppen af siden ...

Margir munnar að metta

  • Íbúafjöldi: 1.225 milljónir. 15 milljón fæðingar árlega.
  • Í Kína er íbúafjöldi mestur í heiminum en þaðan koma aðeins 2,8% af framleiðslu heimsins.
  • Þjóðarframleiðslan (GNP) nam árið 1996 aðeins 625$ á mann.
  • Fólksfjöldi er gífurlegur í austurhéruðum Kína.
  • Samkvæmt gömlum hefðum var gott að eiga mörg börn, einkum syni. Það er sama viðhorf og ríkir í mörgum þróunarlöndum nú á tímum. Mao Zedong, sem var leiðtogi Kína frá árinu 1949, taldi líka að stórar fjölskyldur og margir íbúar væri helsta auðlind Kína. En hvernig á að veita svona mörgu fólki menntun og sjá til þess að það hafi vinnu og mat?
  • Breytingin frá hefðbundnum aðferðum í landbúnaði til nútímaaðferða í landbúnaði og iðnaði hefur orðið til þess að auka atvinnuleysi.
  • Landbúnaðarframleiðsla minnkaði mikið meðan á menningarbyltingunni stóð.

Tilbage til toppen af siden ...

Aðgerðir stjórnvalda til að draga úr fólksfjölgun

  • Eitt barn á fjölskyldu: Frá árinu1980 fengu foreldrar sem eiga aðeins eitt barn ýmis hlunnindi, t.d. ókeypis húsnæði og skóla. Foreldrar, sem áttu fleiri börn en eitt, urðu að borga sjálf. Þessi stefna var rekin í borgunum en í sveitunum vildu bændur áfram eiga mörg börn af því að þau voru mikilvægt vinnuafl. Frá árinu 1988 hafa fjölskyldur í sveitum mátt eignast tvö börn - þrjú ef tvö þau eldri voru stúlkur. Einbirnisstefnan gildir ekki fyrir minnihlutahópa.
  • Hærri giftingaraldur: Karlar mega ekki ganga í hjónaband fyrr en þeir eru 22 ára en konur mega giftast tvítugar. Það þykir afar óheppilegt að eignast barn utan hjónabands. Þess vegna er mikið um löglegar fóstureyðingar.
  • Yfirráð yfir jaðarsvæðum, t.d. Tíbet og nauðungarflutningar Kínverja á þau svæði.
  • Markaðsstefna: Einstaklingar fjárfesta í fyrirtækjum og fá hagnað af gróða þeirra. Eigendur krefjast því aukinnar framleiðni af stjórnendum og starfsfólki. Þetta viðhorf er framandi í Kína þar sem fólk hefur haft mjög frjálsleg viðhorf þar sem vinna er annars vegar.
  • Aukin landbúnaðarframleiðsla og einnig innflutningur á matvælum.
  • Frjáls markaður fyrir landbúnaðarvörur. Bændur verða nú sjálfir að koma vörum sínum á markað í borgunum, beint til neytenda þar. Þeir hafa betri tekjur og geta því fjárfest í betri vélakosti sem eykur framleiðsluna. Þetta kemur sér best fyrir bændur í nágrenni borganna.

Tilbage til toppen af siden ...

Tilbage til KINA-forsiden ...