Gagnrýni um tölvuleiki

Þegar þú skrifar gagnrýni áttu að meta kvikmynd, tölvuleik, tónleika, leiksýningu, bók, listaverk eða annað álíka. Þú skrifar lýsingu sem gefur þeim sem les eða horfir tækifæri til að meta efni, inntak, viðhorf eða tilgang - og einnig verð og tæknilegar kröfur ef um er að ræða tölvuforrit.

Verkefni

Eftir Lars Onslev

Gagnrýni um tölvuleiki.

[Kynning]
Þegar þú skrifar gagnrýni áttu að meta kvikmynd, tölvuleik, tónleika, leiksýningu, bók, listaverk eða annað álíka. Þú skrifar lýsingu sem gefur þeim sem les eða horfir tækifæri til að meta efni, inntak, viðhorf eða tilgang - og einnig verð og tæknilegar kröfur ef um er að ræða tölvuforrit.

[Dæmi]
Finndu gagnrýni um tölvuleiki í blöðum og á netinu.
Þú finnur ýmis dæmi um slíka gagnrýni í kaflanum „krækjur - tölvuleikir“.


Athugaðu síðan:
- hvaða gagnrýni hefur þú lesið eða séð?
- hvaðan kemur gagnrýnin?
- hvaða áhersluatriði eru í gagnrýninni?
Þú getur e.t.v. borið saman gagnrýni nokkurra einstaklinga á sama tölvuleikinn.

[Efni og uppbygging]
Í gagnrýninni á að koma fram:
- upplýsingar s.s. um titil, hönnuði, leikara ef einhverjir eru, framleiðanda o.s.frv.
- stutt lýsing á leiknum
- lýsing á mikilvægustu þáttum leiksins


Mat á eftirtöldu:
- uppbyggingu leiksins
- hversu notendavænn hann er
- hversu spennandi hann er
- hvað góður hann er miðað við aðra ámóta leiki


Þú getur stuðst við þennan lista og skrifað hjá þér minnisatriði fyrir gagnrýnina eða þú getur skrifað beint inn í ritvinnsluforritið. Þá getur þú haft tvo glugga á skjánum þegar þú ferð að vinna verkið og afritað beint það sem þú hefur skrifað.


[Umfjöllun]

Hér eru hugmyndir um hvernig þú getur byrjað að skrifa.
Hafðu hliðsjón af kaflanum [Efnisþættir og uppbygging] og skoðaðu vel leikinn, inntak hans og viðhorf sem þar koma fram:
Hver er gagnrýnandinn:
- Þú sjálf/ur?
- Gagnrýnandi við dagblað? Hvaða dagblað?
- Gagnrýnandi við anna fjölmiðil, t.d. sjónvarpsstöð?

Hugmynda- og upplýsingaöflun:
Kynntu þér leikinn vel, e.t.v. með einhverjum öðrum svo að þið getið rætt inntak hans, aðgerðir og svið. Það er oft auðveldara að skrifa eftir að hafa rætt við aðra.

- Skráðu hjá þér athugasemdir.
- Flokkaðu athugasemdirnar og ákveddu röð þeirra.
- Skrifaðu uppkast að gagnrýninni.
Notaðu ritvinnsluforrit.

[Yfirlestur]
Þú getur sjálf/ur lesið yfir gagnrýnina þína eða fengið einhvern til að gera það:
- Lestu gagnrýnina upphátt fyrir sjálfa/n þig eða einhvern annan - eða láttu einhvern annan lesa.
- Nú átt þú, eða sá sem aðstoðar þig, að gera markvissar athugasemdir við textann:
- Eru hugmyndir þínar með gagnrýninni ljósar og skýrar? Hver eru aðalatriðin sem þú vilt að komi fram?
- Hvað er sérstaklega gott - bæði með tilliti til efnistaka og málfars?
- Er eitthvað óljóst - erfitt að skilja? Hvað?
- Hefur þú breytingartillögur? Hverjar?
- Hefur þú tillögu um góðan og lýsandi titil á gagnrýnina þína? Hvaða titil?

Það er mikilvægt að skrá athugasemdirnar svo þú hafir þær við hendina þegar lokið er við að ganga frá textanum.
Nú skaltu ákveða hvaða athugasemdir eru réttmætar og skipta máli. Síðan skaltu lagfæra bæði efnistök og málfar.
Mundu eftir titlinum.

[Birting]
Hvernig ætlar þú að birta gagnrýni þína?
- Á aðeins að vera texti eða ætlar þú að nota myndir?
- Á umfjöllunin að vera eins og gagnrýni í dagblaði? Hvaða dagblaði?
- Eða eins og sjónvarps- (myndbands-) gagnrýni?

- Á gagnrýnin að birtast á heimasíðu skólans?
- Veldu einhverja þessara aðferða eða finndu upp á öðru.

[Tilbrigði]
Þótt gagnrýnin feli jafnan í sér sömu efnisatriði og formið sé nokkuð ákveðið er hægt að búa til ýmis tilbrigði ef það hentar.
Nú skaltu meta hvort þín gagnrýni fellur að fyrirmælunum:
- Hefur þú sleppt einhverju sem lýst var fyrirmælunum? Hverju?
- Hefur þú bætt einhverju við? Hverju?
- Hvaða áhrif hafði það á gagnrýni þína?

Nú skaltu meta skrif þín og rökstyðja af hverju þú skrifaðir eins og þú gerðir. Þú getur e.t.v. notað það sem fram kemur hér fyrir framan sem hluta af rökstuðningi þínum.


[Samanburður]
Ef fleiri en einn hafa skrifað gagnrýni um sama tölvuleikinn - eða ef þú finnur gagnrýni um „þinn“ leik í fjölmiðlum getur þú reynt að bera saman, finna þá þætti sem eru líkir - og hina sem eru ólíkir. Hér eru nokkur atriði sem rétt er að hafa í huga við samanburðinn:
- Hver eru helstu áhersluatriðin hjá hverjum gagnrýnanda? Hver eru aðalatriðin sem hann hefur ætlað að koma á framfæri?
- Hvað einkennir hönnunina og hver eru áhrifin?
- Hvert er heildarmat gagnrýnendanna á leiknum - að þínu mati meðtöldu?
- Hve margar stjörnur, disklinga eða þess háttar mundi leikurinn fá hjá ykkur gagnrýnendum?
- Af hverju heldur þú að mat gagnrýnenda á leiknum sé mismunandi?

[Draumsýnin]
Felst draumsýn í leiknum (löngunin til að bjarga heiminum eða fá annað hlutverk) eða felur hann í sér óhugnað - eins og í Carmageddon, þar sem markmiðið er að aka á fólk?
Fjallaðirðu um þetta í gagnrýninni? Og ef svo var - hvernig heldurðu að til hafi tekist?