Doris Bloom

Æviágrip
Doris Bloom er fædd 22. mars 1954 í Vereeningen í Suður-Afríku. Hún er dóttir hvíts bónda. Frá 1972 til 1976 stundaði Doris Bloom nám sem leirlistamaður í Listaskólanum í Jóhannesarborg. Doris Bloom hitti danskan mannfræðing og flutti til Danmerkur árið 1976. Hún hélt áfram listnámi á Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn 1976-1984. Frá 1981 hefur Doris Bloom tekið þátt í fjölda sýninga og mörg verka hennar hanga á listasöfnum víða um heim, t.d. í Danmörku, á Þjóðarlistarsafni Suður-Afríku og Listasafni Jóhannesarborgar.

Málverk eftir Doris Bloom