Málarinn Doris Bloom
Doris Bloom (æviágrip) er
dóttir hvíts bónda í Suður-Afríku. Doris Bloom segist verða fyrir sérstökum
áhrifum af hellamálverkunum í suðurhluta Afríku. Henni finnast myndirnar innihaldsríkar
og telur upprunann lifa í myndefni hellamálverkanna. Í hennar augum eru myndirnar hátíðleg,
guðleg frásögn um upphafið.
Doris Bloom málar stórar myndir í sterkum litum. Í málverkum hennar má
sjá áhrif hellamálverkanna.
Ef þú hefur áhuga á að fást frekar við málverk Dorisar Bloom
getur þú t.d.:
Sagt frá myndinni:
Lýstu myndinni, myndefninu, litunum...
Hvaða hugsanir og tilfinningar vekur myndin hjá þér?
Hvað finnst þér um myndina?
Þú getur líka ort ljóð þar sem þú segir frá þeim áhrifum sem myndin hefur á þig.
Eða þú getur sagt frá/skrifað um hvað gerðist áður en maðurinn
kom að bakdyrunum hjá foreldrum Dorisar Bloom.
Eða skrifað um það sem síðan gerðist.
Þú gætir fengið að skoða málverkabækur á skólasafninu
og leitað að myndum eftir Doris Bloom eða aðra listamenn frá Suður-Afríku. Ef
til vill er tímaritið Billedpædagogisk Tidskrift til þar. Í hefti nr. 1-1998 eru
fleiri myndir eftir Doris Bloom.
Önnur dæmi um afríkanska list finnur þú hér: www.mg.co.za/mg/saarts