Guðir      

Innan hindúasiðar eru margar mismunandi guðshugmyndir. Þeir sem eru af æðstu stéttum trúa á einn guðlegan raunveruleika, brahman, alheimssálina. Brahman er nokkurs konar ópersónulegur guð, ekki persóna heldur kraftur sem gegnsýrir allt. Fólk af öðrum stéttum tilbiður marga guði og flokkast það undir fjölgyðistrú.

Helstu guðir hindúa eru: Agni sem er guð elds og verndari heimila. Ganesha er fílaguð en hann er í mannsmynd með fílshöfuð og er guð lærdóms og árangurs. Krishna er guð ástar og guðlegrar gleði. Parvati er gyðja ástar, Sarasvati er gyðja visku og sannleika. Shiva er guð jóga og meinlæta, hann er einnig guð frjóseminnar og hann skapar bæði og deyðir. Sri-Lakshmi er gyðja peninga og fegurðar. Vishnú er góður og náðugur guð, sem heldur jörðinni gangandi og sér um að allt fari rétt fram. Shakti er vinsæl gyðja, einkum á Suður-Indlandi og dregur borgin Kalkútta nafn sitt af henni þar sem eitt af nöfnum hennar er Kali. Hanúman er guð lærdóms og visku.

Ítarefni:



 

 

 

 

 

  Ljósmyndun: Nanna Þóra Jónsdóttir