Yes we can 2 - kennsluleiðbeiningar

2 This is me 63 Hlustunarefni Now I know 1. The horse is brown. 2. The cat is brown and orange. 3. The dog is black. 4. The big rabbit is grey. 5. The little rabbit is black. 6. The pig is pink. 7. The duck is brown. 8. The cow is brown and white. 9. The sheep is white. 10. - The mouse is purple. - PURPLE! - Yes! Look, he has been swimming in paint! Bókmenntir og menning The three billy goats Gruff Ævintýrið um geiturnar þrjár passar vel við viðfangsefni kaflans. Ævintýrið finnur þú á bls. 13 í Teacher’s Book. Leyfðu nemendum að hlusta á ævintýrið og taka þátt með því að segja setningarnar sem eru endurteknar. Þrátt fyrir að nemendur skilji ekki öll orðin munu þau skilja innihaldið þar sem þau þekkja eflaust ævintýrið á íslensku. Spyrjið hvað þeim finnst um ævintýrið The three billy goats Gruff, og biðjið þau að rökstyðja svarið. Ef tími gefst má vinna frekar með það, t.d. með því að leika það eða búa til myndasögu. Söngvar Á vefsíðunni má finna mismunandi útgáfur af þeim söngvum og vísum sem stungið er upp á í Teacher´s Book. Með mörgum þeirra finnast einnig hreyfileikir. Old McDonald had a farm á vel við þennan kafla. Notaðu Myndavegginn til að gefa nemendunum kost á að flétta saman myndum, orðum og setningum úr kaflanum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=