Útbrot

97 Í málinu, sem var höfðað í Los Angeles á miðvikudag, er Epic Games ekki aðeins ásakað um að hafa notað þennan dans án leyfis listamannsins. heldur er fyrirtækið ásakað um að hafa gert þetta margoft áður. Til dæmis er tekið dæmi um að dans Snoop Dogg úr „Drop It Like It’s Hot‟ heiti „Tidy‟ í Fortnite og „Carlton Dance‟ Alfonsos Ribeiros úr The Fresh Prince of Bel-Air heiti þar „Fresh‟. Einnig segja lögfræðingarnir að dans Donalds Faisons úr Scrubs heiti einfaldlega „Dance Moves‟. „Þarna virðist vera um að ræða vanvirðingu og vanmat eða skort á þakklæti á verkum bandarískra listamanna af afrískum uppruna. Þarna er verið að nýta sér frægð þessara listamanna án nokkurrar viðurkenningar,‟ sagði David L. Hecht, einn af lögfræðingum 2 Milly, við Washington Post. „Vandamálið er að þeir sem spila leikinn gætu hugsað með sér að þessir listamenn leyfi þetta,‟ sagði Hecht ennfremur. „Þannig er þetta ekki. Það að þessi dansspor séu til sölu flækir síðan málið.‟

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=