Útbrot

60 VERKEFN I 1. Hvað er vitað fyrir víst um Banksy? Finndu a.m.k. 3 atriði í textanum. 2. Af hverju telur þú að Banksy fari huldu höfði? 3. Grúskaðu á netinu og skoðaðu listaverk Banksy. Finndu mynd sem fellur að þínum smekk og skrifaðu eða segðu bekkjarfélaga þínum frá því af hverju þú valdir þér þessa mynd og hvernig þér finnst hún. Sýnir hún einhverja ádeilu? 4. Skoðaðu myndskeið á netinu sem sýna Dismaland. a. Hvað finnst þér um þennan garð? Hefðir þú viljað fara í hann? Af hverju/af hverju ekki? b. Hvernig nýtti Banksy sér hina þekktu Disneyland garða í hugmyndavinnu sinni að Dismalandi? c. Gast þú fundið atriði í garðinum þar sem finna má þjóðfélagsádeilu? Lýstu því sem þú sást og hvernig þú túlkaðir það sem þjóðfélagsádeilu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=