72 Til kennara Í Skrift 3 er lögð áhersla á að nemendur aefi skrift í gegnum merkingarbaer viðfangsefni þar sem áherslum íslenskunnar er fléttað inn í verkefnin. Nemendur fá meðal annars taekifaeri til að aefa réttritun, skammstafanir, notkun greinarmerkja ásamt fjölbreyttum ritunarverkefnum. Mikilvaegt er að fara vel yfir inngangsopnu bókarinnar með nemendum til að rifja upp hlutverk humlunnar, hvaða fyrirmaeli hún gefur og hvað táknin þýða. Með sjálfsmati er leitast við að efla vitund nemenda um markmið skriftarþjálfunar og hvetja þá til að hafa markmiðin í huga við vinnu sína. Nemendur þekkja meistaralínu úr skriftarefni á þrepi eitt og tvö. Í meistaralínu eiga þeir að leggja sig sérstaklega fram um að nota þekkingu sína á skrift og tengingum til að skrifa orð og málsgreinar að eigin vali. Þegar nemendur hafa lokið við að skrifa í meistaralínu eiga þeir að meta frammistöðu sína með því að lita stjörnur. Besta mögulega frammistaða er þegar allar stjörnurnar eru litaðar. Meistaralína er táknuð með gulum verðlaunabikar. Mikilvaegt er að kennarar kynni sér Skrift 3 – kennsluleiðbeiningar sem eru á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, mms.is. Þar má meðal annars finna yfirlit yfir allar tengingar, hugmyndir að innlögnum með verkefnum bókarinnar, tillögu að kennsluáaetlun í skrift o.fl. Skrift – handbók kennara má einnig nálgast á mms.is en þar eru gagnlegar upplýsingar um kennslufraeði skriftar, markmiðasetningu, námsmat og fleira. Skriftarvefurinn er hagnýtur safnvefur fyrir kennara þar sem finna má allt útgefið efni í skrift og fjölbreytt verkfaeri til skriftarkennslu. Á vefnum er meðal annars stöðumat í skrift, upplýsingar vegna nemenda sem þurfa aukinn stuðning í skriftarnáminu og góð ráð til foreldra ef þjálfa á skrift heima. Skriftarsmiðjan er vefur á mms.is þar sem útbúa má þjálfunarefni í skrift og velja þá leturgerð og staerð sem hentar hverjum nemanda. 72
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=