Previous Page  35 / 164 Next Page
Information
Show Menu
Previous Page 35 / 164 Next Page
Page Background

Kafli 1 • Persónuleg fjármál

33

1.68

Lítið neytendalán, að fjárhæð 50 000 kr., bar 1,6% vexti á mánuði.

Lántökugjaldið var 3000 kr. og mánaðarlegt þjónustugjald var 250 kr.

Greiðslufrestur var til eins árs.

a

Notaðu töflureikni og finndu hver hlutfallstala vaxta var á ári.

b

Hvernig heldurðu að vextirnir í a-lið hefðu breyst ef lánsupphæðin

hefði verið hækkuð í 100 000 kr.?

c

Hver hefði hlutfallstala vaxta orðið í b-lið?

1.69

Neytendalán, að fjárhæð 500 000 kr., bar 0,9% vexti á mánuði.

Lántökugjaldið var 4990 kr. og mánaðargjald 400 kr.

Greiðslufrestur var til eins árs.

a

Notaðu töflureikni og finndu hlutfallslegu vextina á ári.

b

Breyttu vöxtunum í a-lið í 1,4% og finndu hlutfallslegu vextina á ári.

Jafngreiðslulán og lán með jöfnum afborgunum

Þegar greitt er af lánum borgum við bæði afborgun af láninu og vexti.

Jafngreiðslulán

er greitt niður með jafn háum greiðslum á hverjum gjalddaga.

Í byrjun er kostnaður vegna vaxta af láninu hár en afborganirnar lágar. Hluti

afborgananna af upphæðinni fer hækkandi og vaxtahlutinn minnkar eftir því sem

tíminn líður.

Jafngreiðslulán

Lán með jöfnum afborgunum

Af láni með

jöfnum afborgunum

eru greiðsluupphæðirnar misháar. Afborganirnar

af þessum lánum eru jafn háar en kostnaður vegna vaxta breytilegur. Vextir eru

háir í byrjun þegar lánið er hátt en þeir lækka með tímanum þegar lánið lækkar.

Heildarupphæðin, sem borguð er fyrir lán með jöfnum afborgunum, er lægri en fyrir

jafn hátt jafngreiðslulán. Skuldin er hærri allan tímann ef um jafngreiðslulán er að

ræða og þess vegna verða vextirnir hærri og heildarkostnaðurinn meiri.

Vextir

Jafngreiðslulán

Afborgun

Heildargreiðsla

Vextir

Lán með jöfnum afborgunum

Afborgun

Heildargreiðsla

Í upphafi

afborgana af láni

með jöfnum

afborgunum eru

greiðslur háar.

Jafngreiðslulán

Af slíku láni er greitt

með jöfnum greiðslum

á hverjum gjalddaga.

Í byrjun er afborgunar-

hlutinn lágur og vaxta-

hlutinn hár. Þetta

breytist með tímanum.

Lán með jöfnum

afborgunum

. Af slíku

láni er greitt með

misháum greiðslum.

Afborganirnar eru föst

upphæð en vaxta-

hlutinn lækkar með

tímanum.

Heildargreiðsla

á

gjalddaga er summan

af afborgun, vöxtum

og þjónustugjöldum

sem greiða þarf hverju

sinni.

Afborgun

Þegar lán er greitt

til baka er láns-

upphæðinni skipt

í minni hluta sem

kallast afborganir.

Hlutfallstala

kostnaðar segir til

um hvað maður

borgar hlutfallslega

fyrir lán, þ.e. vexti

og öll gjöld sem

fylgja.