Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

SJÁLFBÆRNI 52 Skólar til sjálfbærni Þegar menntun til sjálfbærni er innleidd í skóla þarf allt skólasamfélagið að taka þátt. Allir hafa þar mikilvægt hlutverk. Lykilatriði er að fólk gangi jákvætt og sveigjanlegt að verki til að laga megi hefðbundið skipulag að nýju fyrirkomulagi í ýmiss konar daglegum störfum. Helena Óladóttir, verkefnisstjóri Náttúruskóla Reykjavíkur, hefur sett hlutverk skólastjóra og kennara upp í þessa töflu. Hlutverk skólastjóra Hlutverk kennara Í undirbúningi Að stýra innleiðingu menntunar til sjálfbærni í skólastarfinu og hafa yfirsýn yfir framvindu verksins. Að taka þátt í mótun sameiginlegrar sýnar skólans á menntun til sjálfbærni og að setja verkefninu markmið. Að skapa sveigjanleika í daglegu rekstrarfyrirkomulagi skóla svo sem í stundatöflu og skóladagatali. Að vera virkur þátttakandi í skólasamfélaginu svo sem með því að taka þátt í þróunarverkefnum, deila ábyrgð og láta í ljós skoðanir. Í framkvæmd Ber ábyrgð á að framfylgja markmiðum aðalnámskrár í skólanámskrá skólans. Tekur þátt í faglegri útfærslu markmiða menntunar til sjálfbærni samkvæmt skólanámskrá. Er í forystu um lýðræðislega stjórnarhætti, svo sem að skapa vettvang til gagnrýninnar umræðu, tryggja aðkomu allra að ákvörðunartöku og deila ábyrgð og þátttöku. Stuðlar að lýðræði í skólastarfi með því að skapa rými í kennslu fyrir beina aðkomu nemenda að ákvörðunum er varða nám og kennslu, verkefnaval o.fl . Veitir kennurum tækifæri og tíma til undirbúnings og víðtæks samráðs og samstarfs. Er opinn fyrir nýjum og óvenjulegum leiðum í námi og starfi svo sem þátttöku í samstarfsverkefnum innan og utan skólans, aðkomu fræðsluaðila utan skólans o.fl . Er beinn þátttakandi í að innleiða menntun til sjálfbærni. Það eykur trúverðugleika og skuldbindingar annarra við verkefnið. Sýnir frumkvæði í að auka fagvitund sína m.t.t. menntunar til sjálfbærni og hugrekki til að innleiða nýja starfshætti.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=