Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 51 Umræður: CO 2 merkin talin. Öll merkja þau mengun andrúmslofts sem aftur leiðir til hlýnunar loftslags á Jörðinni með ófyrirséðum afleiðingum. Getum við kynnt okkur ræktun hrísgrjónanna og aðbúnað og laun bændanna? Hvað kostar þessi framleiðsla og flutningur náttúruna? Getum við minnkað þann kostnað? Samanburður: Sams konar flæðirit gert fyrir bygg sem er ræktað á Íslandi og yfirleitt á lífrænan hátt. Margir nota bygg í stað hrísgrjóna. Hafa nemendur reynt það? Hver er munurinn á kostnaði náttúrunnar þegar við borðum bygg eða hrísgrjón? Hvort er betra fyrir náttúruna? (Svipað verkefni er í Náttúruverkefnunum og sambærilegt verkefni hefur verið útfært og er vinsælt í Foldaskóla.) Menntun til sjálfbærni Markmið: • Að skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu sjálfbærni. • Að efla umhverfisvitund; þekkingu, skilning og væntumþykju á náttúru, umhverfi og fólki. • Að auka vilja til náttúruverndar og virðingu fyrir fjölbreytileika náttúru og mannlífs. • Að temja sér lífsvenjur sem stuðla að heilbrigði Jarðar, náttúru og fólks. • Að þjálfa hæfni til lýðræðis; samlíðan með fólki, gagnrýna hugsun og samskipti. • Að horfa til framtíðar, virða rétt komandi kynslóða til sæmandi lífs og heilbrigðis. Kveikjur: • Útinám og útikennsla; horfa, snerta, hlusta, lykta, upplifa, spyrja, ræða, greina, nefna. • Setja sig í spor; ólíkar aðstæður, ólíkt verðmætamat, ólíkur tími. • Fjölmiðlaumfjöllun, frétt, kvikmynd, frásögn, söngtexti. • Saga, þjóðsaga, dæmisaga. • Verkefni. • Leikir.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=