Sjálfbærni - Rit um grunnþætti menntunar

Grunnþættir menntunar 37 kvilla nútímasamfélags, s.s. gífurlega fjölgun barna með athyglisbrest og ofvirkni, megi rekja til of lítillar útiveru barna. 24 Lífsþarfir Hverjar eru lífsnauðsynjar okkar, hvers getum við alls ekki verið án? Hvað tökum við t.d. með okkur í nokkurra daga ferðalag ef við þurfum að bera allt á bakinu? Kennari spyr bekkinn og skrifar svör á töflu. Þar kemur líklega langur listi. Þegar nemendum dettur ekkert fleira í hug er farið yfir listann og hann ræddur. Þarna eiga bara að vera lífsnauðsynjar. Sum atriðin fela önnur í sér, öll matvæli falla undir fæðu, öll drykkjarföng undir vatn, föt og húsnæði falla undir skjól og þar sem fólk hefur nægilegt rými hefur það líka venjulega nægilegt loft (súrefni). Svo að líkamlegar lífsþarfir einstaklings má segja að séu fæða, vatn, skjól og rými og allt þarf þetta að vera af góðum gæðum og þannig skipað að við getum nýtt það. (Í verkefnamöppunni Náttúruverkefni 25 eru mörg verkefni sem undirstrika lífsnauðsynjarnar, sjá t.d. Ljúfar lífsþarfir, Skaut búsvæðis og mörg fleiri.) Þetta eru líkamlegar lífsþarfir. Hvað finnst okkur nauðsynlegt að hafa umfram þær? Hvað þurfum við til að okkur líði vel, komumst vel af og þyki skemmtilegt? Félagsskap, listir, sköpun, þekkingu, lestur, samgöngutæki ...? Nemendur rökræða hvað er nauðsynlegt og hvað ekki. Þeir hafa án efa ólíkar skoðanir og álit. Getum við hugsanlega verið án einhvers sem við höfum talið ómissandi? Gleymum við einhverju sem við gætum alls ekki verið án? Gætum við hugsanlega breytt siðum okkar og venjum til að komast af með minna en við gerum nú? Gætum við þjálfað okkur í hófsemi?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=