68 æfingar í heimspeki

59 68 ÆFINGAR Í HEIMSPEKI – Menntamálastofnun 2014 – 40596 J . Hugsað heimspekilega um tungumálið, skólann, tóbak, áfengi og önnur vímuefni Æfing 66: Hugsað heimspekilega um tungumálið Gögn: Fullyrðingar sem þátttakendur draga og taka afstöðu til. Spjöld sem lögð eru á borð eða hengd á töflu og liggja til grundvallar ákvörðunum þátttakenda þegar þeir meta fullyrðingarnar. Á spjöldunum stendur skynsamlegt, óskynsamlegt og ?. Markmið: Að mynda sér skoðun á stöðu, gildi og hlutverki íslenskunnar. Rökræður. Aldur: Unglingastig og eldri. Lýsing: Leiðbeinandi er með spjöld sem á standa ýmsar fullyrðingar og skoðanir sem hafa með íslenskt mál að gera. Þátttakendur draga spjöld, mynda sér skoðun á því sem þar stendur, gera grein fyrir skoðun sinni, færa rök fyrir henni og rökræða við félaga sína. Það fer eftir fjölda þátttakenda hvernig verkefnið er unnið. Ef þátttakendur eru fáir, þ.e. um það bil tólf eða færri má sitja saman við stórt borð og nota borðið til að leggja spjöldin á. Ef þátttakendur eru fleiri má nota töflu og líma spjöldin á töfluna í stað þess að leggja þau á borðið. Þátttakendur vinna saman í pörum eða smærri hópum. Hvert par eða hópur dregur eitt spjald með fullyrðingu hjá leiðbeinanda og tekur sér tíma til að meta í hvaða flokk fullyrðingin sem dregin var fari, þ.e. skynsamlegt, óskynsamlegt eða ? . Í smærri hópum sem vinna við stórt borð eru flokkarnir þrír skynsamlegt, óskynsamlegt og ? á borðinu fyrir framan en í stórum hópum eru flokkarnir þrír skráðir á töfluna. Þegar allir hafa metið þá fullyrðingu sem þeir fengu gera pörin/hóparnir grein fyrir afstöðu sinni og setja fullyrðingarnar í viðeigandi flokk á borðinu/töflunni. Þegar hér er komið sögu þarf ekki að rökstyðja afstöðu sína þó vissulega megi útfæra verkefnið þannig að afstaðan sé rökstudd strax. Farnar eru fleiri umferðir og pörin/hóparnir draga fleiri spjöld og gera grein fyrir afstöðu sinni. Þegar búið er að fara yfir góðan slatta af spjöldum eru þátttakendur spurðir að því hvort það sé einhver sem vilji gera athugasemd við einhverja ákvörðun sem komið hefur fram. Viðkomandi er beðin um að gera grein fyrir athugasemd sinni og færa rök fyrir því hvers vegna eitthvað ætti að falla í annan flokk, t.d. úr skynsamlegt yfir í óskynsamlegt. Leiðbeinandi flytur spjaldið úr einum flokki yfir í annan í samræmi við vilja síðasta ræðumanns. Ef þeir sem röðuðu spjaldinu niður upphaflega vilja gera athugasemd mega þeir gera það og geta því fært spjaldið aftur í sinn upphaflega flokk. Þetta verkefni getur gengið svo lengi sem einhver gerir athugasemdir og vill færa spjald yfir í annan flokk og rökstyðja val sitt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=