Saman gegn matarsóun

44 Saman gegn matarsóun Eins og stendur í Aðalnámskrá grunnskóla skal megintilgangur námsmats vera að leiðbeina nemendum um námið: Markmið skólastarfs eru margvísleg og hægt að fara ýmsar leiðir til að ná þeim og því verða matsaðferðir að vera fjölbreyttar. Þær verða að hæfa hæfniviðmiðum, endurspegla áherslur í kennslu og taka mið af nemendahópnum. Námsmat á að vera áreiðanlegt, óhlutdrægt, heiðarlegt og sanngjarnt gagnvart nemendum. Það þýðir að meta þarf alla þætti námsins, þekkingu, leikni og hæfni með hliðsjón af hæfniviðmiðum í aðalnámskrá. Í námsmati í grunnskóla skal leggja mat á hæfni nemenda innan hvers námssviðs og á það við jafnt í bóklegu námi, verk- og listnámi. Í köflum um námsgreinar eða námssvið í aðalnámskrá verða útfærð viðmið um mat á viðkomandi námssviði. Einnig skal innan hvers námssviðs leggja mat á hæfni nemenda sem byggist á grunnþáttum í menntun og áhersluþáttum grunnskólalaga. Slík hæfni er nefnd lykilhæfni við námsmat í lok grunnskóla. Viðmið um mat á lykilhæfni í grunnskóla eru sett fram í fimm liðum sem eru sameiginlegir öllum námssviðum: • Hæfni nemenda til að tjá hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir munnlega, skrif- lega og á annan hátt. Hæfni til að miðla þekkingu og leikni sinni og flytja mál sitt skýrt og áheyrilega og taka þátt í samræðum og rökræðum. • Skapandi hugsun og frumkvæði í efnistökum og úrvinnslu. Hæfni nemenda til að nota þekkingu og leikni, draga ályktanir, áræðni til að leita nýrra lausna og beita gagnrýninni hugsun og röksemdafærslu. • Hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt, í samstarfi við aðra og undir leiðsögn. • Hæfni nemenda til að nýta margvíslega miðla í þekkingarleit, úrvinnslu og miðlun og nýta upplýsingar á ábyrgan, skapandi og gagnrýninn hátt. • Hæfni nemenda til að bera ábyrgð á eigin námi og leggja mat á eigin vinnubrögð og frammistöðu. (Aðalnámskrá grunnskóla bls. 55)

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=