RISAstórar smáSÖGUR 2023

58 Ég horfi til baka og sé … manninn með byssu í hægri hendinni og í hinni hendinni heldur hann á vasaljósi sem lýsir á mig. Ég sit stjörf í snjónum og get ekki hreyft mig. Ekki að ég þori því ekki, heldur er mér svo kalt að ég get það ekki. Hann horfir í augun á mér og glottir, hleður byssuna, miðar henni á mig og ... Ég vakna! Ég ligg í rúminu mínu og vekjaraklukkan er í gangi. Var þetta í alvörunni draumur!? Hann var svo raunverulegur! Jæja, ég er allavega á lífi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=