RISAstórar smáSÖGUR 2023

53 vinnu var fyrsti gítarinn hans tilbúinn í notkun. Afi varð svo spenntur að gera fleiri gítara og læra að spila á þá alla. Hann þurfti sjálfur að finna út úr því hvernig hann ætti að gera hlutina, því þegar hann var ungur var ekki til YouTube. ÉG OG AFI Við afi erum mjög líkir og höfum gaman af að finna okkur verkefni til að vinna í höndunum. Afi hefur alltaf verið duglegur að kenna mér að smíða og gaf mér fyrstu verkfærin mín. Nú bý ég hjá ömmu og afa af því ég harðneitaði að flytja með mömmu og pabba til Grænlands þar sem pabbi er að læra að verða uppstoppari. Öll kvöld horfum við afi á kvöldfréttir og förum svo út í smíðaskemmu. Nú hefur afi loksins treyst mér til að nota gömlu hljóðfæraverkfærin sem hann fékk á mínum aldri. Eftir mikla vinnu er ég nú búinn að gera fyrsta gítarinn minn sem hljómar óvenju fallega!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=