RISAstórar smáSÖGUR 2022

96 Þetta var besti dagur lífs míns. Ég hafði farið aftur í tímann og hitt HANN. En allt í einu var mér mál að pissa og ég spurði hvort það væri möguleiki á að fá að fara á klósettið. Stan Lee hélt það nú og vísaði mér réttu leiðina. Þegar ég hafði lokið mér af og opnað klósettdyrnar var ég aftur kominn í Húsdýragarðinn. Ég sá vini mína en engan Stan Lee. Hafði þetta verið draumur eða hafði ég, þrátt fyrir allt, farið aftur í tímann? Ég er enn þá að velta því fyrir mér hvað gerðist þennan dag.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=