RISAstórar smáSÖGUR 2022

77 Ég hringdi í hann og sagði: „Halló, Enginn Ekkert Einhversson hérna. Ég þarf smá aðstoð við eitt vandamál.“ Hann öskraði: „ALDREI FRIÐUR, ALDREI FRIÐUR!!!“ En bætti svo vingjarnlega við: „Við hvaða vandamál, drengur minn?“ Svo ég sagði honum frá jólasveinavandamálinu og hann svaraði: „Ég hef ekki tíma fyrir svoleiðis bull!“ og lagði á. Ég var reiður út í Barack Bobama og hræddur um jólin og ákvað að heimsækja Albert og segja honum vondu fréttirnar. Þegar ég var kominn heim til Alberts brutum við heilann um málið. Sem betur fer er Albert, vinur minn, kolkrabbi og kolkrabbar hafa 9 heila svo hann var enn þá með 3 heila og okkur datt snjallræði í hug: Vélmenni sem leikur jólasvein! (Blanda af jólasveini og vélmenni). Og viti menn, okkur tókst að búa þannig vélmenni til! Ég föndraði það m.a. með ruslakörfu, brókinni hans bróður míns (vonandi verður hann ekki reiður) og enginn annar en Albert Beinstein forritaði vélmennið með forritunarmáli sem heitir JavaScript. Hann sýndi mér það og það leit einhvern veginn svona út:

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=