Ready for Action kennsluleiðbeiningar

Ready for Action – kennsluleiðbeiningar – 9057 – Menntamálastofnun 2018 – Fun and Entertainment 8 Summer Vacation Nemandabók bls. 42 Hlustunarefni: Sjá kafla um hlustunarefni. Hobbies to entertain me Verkefni á bls. 43 í nemendabók, survey sheet er í verkefnablaðakafla. Board game Nemendabók bls. 44–45 Einfalt borðspil þar sem nemendur þurfa eingöngu tening og eitthvað smátt, t.d. strokleður, til að nota sem spilapeð. Þeir kasta svo teningnum og lenda þá á einhverjum reit. Lendi nemandi á fyrirmælum þarf að fara eftir þeim og færa sig á viðeigandi reiti. Train your brain Nemendabók bls. 44–45 Þessar spurningar má nýta á ýmsa vegu. Einfalt er að láta nemendur svara þeim skriflega, öllum eða hluta af þeim. Þær má líka nota sem umræðugrundvöll, annað hvort fyrir nokkra nemendur saman eða allan bekkinn. Enn önnur leið er að gera þessa punkta að ritunarverkefnum, velja úr þeim. Loks mætti nýta spurningarnar sem heimanám þar sem nemendur velta þeim fyrir sér með foreldrum sínum og koma svo með svörin aftur í skólann.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=