Ofbeldi_gegn_börnum - page 74

72
Fréttir og umfjöllun í fjölmiðlum
þar sem umfjöllunarefnið er ýmis
samskipti, jákvæð og neikvæð, einstaklingar eða hópar. Hvað eru góð
samskipti, hvar liggja mörkin og hvers vegna?
Atvinnuauglýsingar.
Nemendur skoða atvinnuauglýsingar og greina
hversu algengt er að krafist sé góðrar samskiptahæfni. Umræður um
hvað þetta þýðir í raun, hvers vegna það sé mikilvægt og hvað þau sem
bekkur geti gert til að efla samskiptafærni sína.
Kvikmyndir.
Horft á og rætt um kvikmyndir sem fjalla um einelti og
annað ofbeldi. Dæmi:
Odd Girls Out
(fjallar um einelti meðal unglings-
stúlkna),
About a boy
,
Billy Elliot
,
Grimmd
,
Sögur af einelti
(Bully),
The
Diary of Anne Frank
,
Vesalingarnir
.
Staðalmyndir.
Bókmenntir, kvikmyndir, auglýsingar og fréttir má einnig
nota til að hjálpa nemendum til að skoða staðalmyndir kynja, t.d. má
hvetja þá til að prófa að skipta um kynferði persóna sem fjallað er um
til að athuga hvort það virkar eða ekki og hvers vegna.
Eftirtalin verkefni má laga að börnum á öllum aldri:
Kennarar og annað starfsfólk skóla ræði opinskátt um ólíkar kyn-
hneigðir og kynvitundir, til að mynda með því að kynna fyrir nemend-
um réttindabaráttu hinsegin fólks. Einnig mætti benda á fyrirmyndir
úr opinberu lífi, svo sem kvikmyndastjörnur, stjórnmálafólk eða
tónlistarfólk sem er hinsegin.
Athugið að hinsegin fólk sé sýnilegt í efni skólans, á myndum á veggj-
um og í kvikmyndum sem eru sýndar. Kaupa þarf inn bækur sem fjalla
um ólíkar kynhneigðir, jafnvel þó þær séu á erlendum tungu­málum.
Sýnið kvikmyndir og heimildarmyndir sem tengjast efninu.
Fáið fræðslu með reglubundnum hætti frá Samtökunum ´78 fyrir
nemendur, starfsfólk og foreldra. Samtökin sinna fræðslu barna frá
leikskólaaldri og upp úr.
Setjið umræðu og aðgerðir er snúa að kynhneigð og kynvitund inn
í stefnumótandi gögn skólans, svo sem jafnréttisáætlun.
1...,64,65,66,67,68,69,70,71,72,73 75,76,77,78,79,80,81,82,83,84,...92
Powered by FlippingBook