Ofbeldi gegn börnum

88 • Sýnið kvikmyndir og heimildarmyndir sem tengjast efninu. • Fáið fræðslu með reglubundnum hætti frá Samtökunum ´78 fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Samtökin sinna fræðslu barna frá leikskólaaldri og upp úr. • Setjið umræðu og aðgerðir er snúa að kynhneigð og kynvitund inn í stefnumótandi gögn skólans, svo sem jafnréttisáætlun. FJÖLBREYTT SAMSETNING HÓPA Mikilvægt er að breyta reglulega samsetningu í hópum og paravinnu. Þegar hópaskiptingin er gerð skemmtileg verða nemendur oft jákvæðari gagnvart því að fara í nýjan hóp, auk þess sem aðferðin getur vakið athygli á því að þeir eiga ýmislegt sameiginlegt. Dæmi um leiðir til að para nemendur eða setja þá í hópa: • Nemendur eru beðnir að raða sér í beina röð á beina línu (t.d. krít eða málaralímband). Kennarinn segir þeim að nú eigi þeir að raða sér á línuna eftir aldri, þeir sem eru fæddir fyrst standa fremst og svo koll af kolli þar til sá yngsti stendur aftast á línunni. Það eru tvær reglur, það er bannað að tala og maður þarf alltaf að snerta línuna en það má nota fingur og önnur tákn. Þegar talið er að röðin sé rétt byrjar elsti nemandinn á því að upplýsa hvenær hann á afmæli og síðan koll af kolli. Ef þörf er á er röðin leiðrétt. Kennarinn biður þá fjóra sem eru fyrstir að fara saman í hóp, síðan næstu fjóra og svo koll af kolli. Það má einnig telja í hópana þannig að t.d. fimmti hver nemandi verði saman í hóp. • Nemendur eru beðnir að mynda fjögra manna hóp með öðrum sem eiga mömmu sem hefur sama upphafsstaf í nafninu sínu. • Nemendur eru beðnir að mynda fjögra manna hóp með öðrum sem hafa sömu þversummu í afmælisdegi sínum. • Kennarinn klippir ljóð niður í línur. Hver nemandi fær eina línu. Nemendur semmynda sama ljóð eru saman í hópi. Svipað má gera með reikningsdæmi og ljósmyndir svo nokkuð sé nefnt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=