Ofbeldi gegn börnum

75 VERKLAGSREGLUR 9.1 Á heimasíðu Barna- og fjölskyldustofu er að finna verklagsreglur skólafólks um tilkynningarskyldu starfsmanna leik-, grunn- og framhaldsskóla til. Skilgreindir verkferlar þurfa að vera aðgengilegir starfsfólki og foreldrum barnaverndarnefnda: Á sömu síðu má einnig finna verklagsreglur ummeðferð mála þegar grunur er um líkamlegt ofbeldi. Skóla- og frístundasvið og velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafa sett verklagsreglur vegna nemenda með fjölþættan vanda. Reglunum er ætlað að skýra ábyrgð einstakra stofnana Reykjavíkurborgar við vinnslu mála þar sem vandi nemenda er alvarlegur og fjölþættur, auk þess að skapa vinnulag sem tryggir skilvirka samvinnu stofnana þannig að hlutverk aðila séu skýr og markmið skilgreind. STUÐNINGUR VIÐ BARN 9.2 Þegar búið er að tryggja öryggi barns sem hefur orðið fyrir ofbeldi þarf að veita því viðeigandi ráðgjöf og stuðning innan og/eða utan skólans. Barnið á að fá tækifæri til að vinna úr afleiðingum ofbeldisins með til þess bærum fagaðila eins lengi og nauðsyn krefur. Það felur meðal annars í sér að byggja upp traust og efla sjálfsöryggi barnsins. Mikilvægt er að sýna foreldrum barns sem verður fyrir ofbeldi samkennd og skilning enda finna þeir fyrir sársauka, vanmætti, ótta og reiði. Þegar um er að ræða einelti þarf jafnframt að vinna með barninu/börnunum sem leggja í einelti. Høiby (2009) leggur áherslu á að greina á milli barnsins og óæskilegrar hegðunar þegar verið er að vinna með þeim sem leggja í einelti. Það gefur barninu tækifæri til að breyta hegðun sinni til betri vegar og foreldrunum og starfsfólki skólans tækifæri til að styðja það og hrósa fyrir framfarir. Forsenda þess að barnið, sem leggur í einelti eða beitir öðru ofbeldi, nái árangri, er að það horfist í augu við af hverju hegðun þess er röng og að það finni hjá sér þörf til að breyta henni og fái stuðning til þess. Alltof oft er barnið hvatt til að biðjast fyrirgefningar og þar með á málið að vera afgreitt. Þegar hugur fylgir ekki máli hefur orðið „fyrirgefðu“ enga þýðingu, hvorki fyrir þann sem beitti ofbeldinu né hinn sem fyrir því varð og getur jafnvel gert illt verra. Oft virðist eini tilgangurinn vera sá að hinir fullorðnu komi málinu af höndum sér. Verklagsreglur skólafólks um tilkynningarskyldu Þegar öryggi barns sem hefur orðið fyrir ofbeldi er tryggt þarf að veita því viðeigandi ráðgjöf og stuðning innan og/eða utan skólans

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=