Next up 3

269 REFERENCE SECTION To quote: Bein tilvitnun er þegar þú skrifar nákvæmlega það sem stendur í heimildinni. Það er leyfilegt svo lengi sem þú gefur upp heimildina. Bein tilvitnun ætti að vera stutt, helst aðeins ein eða fáeinar setningar. Gæsalappir eru notaðar í upphafi og lok tilvitnunar. To paraphrase: Óbein tilvitnun er þegar þú endursegir efnið úr heimild með þínum eigin orðum. Sama hvernig þú vitnar, verður þú alltaf að gefa upp heimildirnar sem þú hefur notað í heimildaskrá. Að gera heimildarskrá Heimildaskrá er yfirlit yfir þær heimildir sem þú notar, til dæmis þegar þú skrifar texta eða býrð til kynningu. Þú þarft að skrá heimildirnar þannig að þú og aðrir geti fundið þær aftur. Fyrir heimildir á netinu ættir þú að hafa með eins mikið af þessum upplýsingum og mögulegt er: höfund, titil vefsíðu, vefslóð (URL) og dagsetningu þegar efnið var sótt. Á ensku kallast heimildaskrá reference list. Dæmi: Thomas, Angie, The Hate U Give, HarperCollins Publishers, 2017 BBC News, “Confederate and Columbus statues toppled by US protesters”, https://www.bbc.com/news/world-us-canada-53005243, accessed 22.06.2020

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=