Next up 3

NEXT UP! 3 260 Tungumál (Language) Að skilja fyrirmæli með verkefnum Þegar þú leysir verkefni, hvort sem er kennslubók eða á prófi, er mikilvægt að skilja til hvers er ætlast. Taktu því vel eftir sagnorðinu í fyrirmælunum. Dæmi: Compare the two poems. (Sagnorðið compare segir þér að þú eigir að bera saman.) Hér er listi yfir sagnorð sem oft eru notuð í fyrirmælum með verkefnum: to argue – að rökstyðja, útskýra sýn þína á ákveðið málefni to compare – að bera eitthvað saman við annað to consider – að íhuga, hugleiða vandlega to describe – að lýsa, draga upp mynd af einhverju eða einhverjum to discuss – að ræða, draga fram fleiri hliðar málsins to examine – að rannsaka eitthvað to explain – að útskýra, gera grein fyrir einhverju to give reason – að rökstyðja, styðja skoðun, álit eða viðhorf með rökum to persuade – að sannfæra, telja einhvern á að gera eitthvað to reason – að hugsa, rökræða, ræða mál eða efni to recount / to retell – að endursegja, segja frá atburði to reflect on – að íhuga eitthvað, velta því fyrir sér to summarise – að taka saman, skrifa samantekt með mikilvægustu atriðunum Fyrirsagnir (Headline style and Sentence style) Hægt er að skrifa enskar fyrirsagnir á tvenns konar hátt og eru báðir rithættirnir réttir. Munurinn snýst um hversu mörg og hvaða orð eru skrifuð með stórum upphafsstaf. Að skrifa orð með stórum upphafsstaf kallast hástafanotkun. Önnur leiðin kallast Headline style. Þá byrjar fyrsta og síðasta orðið í fyrirsögninni á stórum staf, ásamt öllum nafnorðum, sagnorðum, lýsingarorðum, fornöfnum og atviksorðum. Greinir, samtengingar og forsetningar eru skrifaðar með litlum stöfum. Dæmi: Ivan the Terrible The Curious Incident of the Dog in the Night-time

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=