245 REFERENCE SECTION Nafnorð sem finnast bara í fleirtölu Dæmi: police, people, clothes, trousers, stairs, headphones, directions Sagnorð sem standa með þessum nafnorðum eru alltaf í fleirtölu: These people are all members of our club. The police were at the scene of the crime. His trousers are blue. Eignafall (Genitive) Eignafall er notað þegar talað er um eignarhald, eitthvað tilheyrir einhverjum. • Eignafall með úrfellingarkommu + s (’s) Þetta form er oft notað þegar „eigandinn“ er einstaklingur eða dýr: My friend’s mother called yesterday. I just love Mary’s new coat. The cat’s eyes shone in the dark room. Í fleirtölu bætist oftast bara við úrfellingarkomma: the brothers’ house Ef um óreglulegar fleirtölumyndir er að ræða, þar sem nafnorðið endar ekki á s, bætist við úrfellingarkomma og s: the children’s playground • Eignafall með of Þessi mynd er oft notuð þegar „eigandinn“ er ekki einstaklingur eða dýr: The capital of New Zealand is Wellington. The photographer captured the beauty of the sunset.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=