Náttúrulega 1

Kæri nemandi Allir námsmenn þurfa að temja sér góðar námsvenjur. Hér eru góð ráð sem gætu hjálpað þér við lesturinn. Áður en þú byrjar • Skoðaðu bókina vel, myndir og teikningar. • Lestu efnisyfirlit og kaflaheiti. • Um hvað fjallar bókin? • Hvað veist þú um efnið? Eftir að þú lest • Rifjaðu upp það sem þú last. • Veltu fyrir þér hvað eru aðal- atriði og hvaða atriði skipta minna máli. • Hugsaðu um það sem þú hefur lært og tengdu við það sem þú vissir áður. • Reyndu að endursegja textann með eigin orðum. Á meðan þú lest • Finndu aðalatriðin. • Skrifaðu hjá þér minnispunkta. • Gott er að gera skýringar- myndir eða hugtakakort. • Spurðu um það sem þú skilur ekki, t.d. orð eða orðasambönd. LESTRARRÁÐ Í þessari bók lærið þið: • Hvernig líf varð til og hvernig allar lífverur tengjast og hafa þróast. • Hvernig og af hverju fólk og önnur dýr anda og sjá og hvernig hjarta-, æða- og stoðkerfi líkamans virkar. • Hvernig hlutir verða til og hvað tækni er. • Hvernig veður verður til og hvernig hægt er að lesa í veðurspá. • Hvernig náttúran er á Íslandi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=