Náttúrulega 1

40319 Halló! Núna ert þú á leið í náttúrufræði þar sem þú lærir sann- leikann um náttúruna. Þar er hægt að komast nær því að skilja hvernig heimurinn virkar en allt í kringum þig er náttúrufræði! Meira að segja það að sjá er nátt- úrufræði og þú færð aðeins að kynnast því í bókinni. Í þessari bók munt þú læra ýmislegt fleira um náttúruna og hvernig lífið á jörðinni byrjaði. Þú lærir um líkamann þinn, hvernig hann stendur uppréttur og hvernig hann getur hreyft sig. Þú færð að gera vísindatilraunir, prófa þig áfram og reyna að finna upp á nýjum hlut! Þú munt líka rannsaka veðrið, skoða náttúruna og skilja betur hvers vegna Ísland er eins og það er. Góða skemmtun! Náttúrulega 1 er fyrsta kennslubókin af þremur í bóka- flokknum. Hann er ætlaður í kennslu í náttúrugreinum fyrir miðstig. Með bókinni fylgir vinnubók, kennsluleið- beiningar, gagnvirkur spurningabanki, námsmatsbanki og fleira. Höfundar eru Halldóra Lind Guðlaugsdóttir, Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir og Telma Ýr Birgisdóttir Myndhöfundur er Krumla

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=