Náttúra til framtíðar

| 40318 | © Landvernd og Menntamálastofnun 2022 | NÁTTÚRA TIL FRAMTÍÐAR 42 Alþjóðlegt samstarf ¾ Ísland er aðili að Sameinuðu þjóðunum, samtökum sem stofnuð voru eftir síðari heimsstyrjöld til að koma í veg fyrir frekari stríð. Öll viðurkennd sjálfstæð ríki í heiminum (nema Vatíkanið) eru meðlimir og reglulega er fundað um þau mál sem samtökin koma að. Einn megintilgangur Sameinuðu þjóðanna er að standa vörð um heimsfriðinn en þær koma einnig m.a. að málefnum eins og loftslagsmálum, mannréttindum, menningu, matvælum og heilbrigðismálum. Þeir samningar Sameinuðu þjóðanna sem snúa beint að náttúru og lífríki eru m.a. eftirfarandi. ¾ Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun eru 17 talsins og eiga að leiða til betra lífs, lífsskilyrða og umhverfis árið 2030 (sjá nánar í verkefni 6). Markmið 13 snýst um bráðaaðgerðir gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra, markmið 14 snýst um að vernda og nýta hafið og auðlindir þess á sjálfbæran hátt og markmið 15 snýst um að vernda og endurheimta vistkerfi á landi og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra, vinna að sjálfbærri stjórn skóga, berjast gegn eyðimerkurmyndun, stöðva jarðvegseyðingu, endurheimta landgæði og sporna gegn tapi á lífbreytileika. ¾ Parísarsamkomulagið (eða Parísarsáttmálinn) var samþykkt árið 2015 og þá sendi Ísland líkt og önnur aðildarríki Loftslagssamningsins inn svokallað landsmarkmið um samdrátt í losun til ársins 2030. Ísland tilkynnti að það myndi taka þátt í sameiginlegu markmiði Evrópuríkja um 40% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2021–2030 miðað við árið 1990. ¾ Ramsarsamningurinn um votlendi snýst um að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega sem lífsvæði fyrir votlendisfugla. ¾ Samningur um líffræðilega fjölbreytni snýst um að vernda líffræðilega fjölbreytni og að stuðla að sjálfbærri nýtingu lífvera. ¾ Samningur um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun snýst um að vinna gegn eyðimerkurmyndun og draga úr skaðlegum afleiðingum þurrka í löndum sem eiga við alvarlegan vanda að etja af völdum þurrka og/eða eyðimerkurmyndunar. Ísland hefur líka skrifað undir marga aðra alþjóðlega samninga m.a. um mengun, loftslagsmál og úrgangsmál.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=