Náttúra til framtíðar

| 40318 | © Landvernd og Menntamálastofnun 2022 | NÁTTÚRA TIL FRAMTÍÐAR 34 Vistheimt Á sama hátt og bein eru lengi að gróa getur það tekið mjög langan tíma fyrir skemmd eða hnignuð vistkerfi að ná bata. Ferlið þegar hnignuðu vistkerfi er hjálpað við að ná bata er kallað endurheimt vistkerfis eða einfaldlega vistheimt. Tilgangur vistheimtar er m.a. að endurheimta búsvæði og lífbreytileika og bæta þjónustu vistkerfa. Vísindafólk um allan heim hefur áratugum saman lýst sívaxandi áhyggjum af ástandi Jarðar m.a. ósjálfbærri landnýtingu, tapi á lífbreytileika, ágengum framandi tegundum, búsvæðaeyðingu, farsóttum og samspili þessara vandamála við loftslagshamfarir og ofneyslu mannsins. Áratugurinn 2011–2020 var tileinkaður lífbreytileika hjá Sameinuðu þjóðunum og þó að margt hafi verið gert á þessum tíma þá heldur ástand Jarðar enn áfram að versna. Við eigum aðeins eina Jörð og þar sem líf okkar er háð vistkerfum og lífbreytileika þeirra, dugar ekki lengur að vernda þau sem eru eftir, við þurfum að snúa dæminu við og endurheimta vistkerfi sem hafa hnignað eða tapast. Því hafa Sameinuðu þjóðirnar tileinkað áratuginn 2021–2030 endurheimt vistkerfa. Það liggja mörg tækifæri í vistheimt og Ísland getur svo sannarlega tekið virkan þátt í að endurheimta vistkerfi, bæði á landi og hafi. Verkfærataska vistheimtar Verkfærataska vistheimtar inniheldur fjölbreyttar aðgerðir því aðstæður eru mismunandi á hverjum stað. Styrkja þarf getu vistkerfa til að ná sér eftir áföll og aðalatriðið er að láta náttúruna sem mest um að lækna sig sjálfa. Svo þarf að muna að vistheimt er langhlaup, það eru engar skyndilausnir og batinn tekur tíma líkt og beinbrot sem þarf að gróa. Sömu þrjár nálganir gilda alls staðar, hvort sem vistheimtin á sér stað á landi eða í sjó en á Íslandi hefur hingað til aðallega verið unnið með vistheimt á landi. Einfaldasta vistheimtin er að minnka álag á raskaða svæðið eða friða það alveg fyrir álagi. Álagið getur m.a. verið óhófleg beit, ofveiðar eða traðk og önnur umferð. Þannig fær vistkerfið frið og tækifæri til að jafna sig. Stundum er þetta nóg. Ef friðun er ekki nóg þarf að finna hvað það er sem hindrar eða hægir á bata vistkerfisins og skipuleggja aðgerðir til að yfirvinna það. Dæmi um takmarkandi þætti eru frostlyfting, rof, skortur á næringarefnum eða að lykiltegundir séu ekki til staðar. Aðgerðir gætu þá snúist um að stöðva rof og draga úr frostlyftingu eða að koma stofnum viðkomandi tegunda á legg. Þar sem vistkerfið er mjög illa farið getur þurft að beita fleiri en einni aðferð. Við endurheimt birkiskóga á örfoka landi þarf oft bæði uppgræðslu til að stöðva rof og draga úr frostlyftingu og að gróðursetja eða sá birki til að koma á legg trjám sem geta síðan sáð sér út. Í sumum tilfellum getur þurft að fjarlægja ágengar framandi tegundir af svæðinu til að vistkerfið nái bata. Ítarlega er fjallað um vistheimt og verkfærakistu vistheimtar á landi í bókinni „Að lesa og lækna landið“.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=